Innlendar fréttir
- 22:35
- Öryggisráðið fundar um Gaza
- 22:29
- Vistmenn fluttir frá Seli í dag
- 22:27
-
Lokaumræða um fjárhagsáætlun Rvk
- 22:23
-
Fjölmennur framsóknarfundur færður
- 19:51
-
FME tjáir sig ekki um bankaskýrslur
- 19:40
-
Óvissa um hver eigi tryggingafélög
- 19:26
-
Blindraletur Brailles 200 ára
- 19:25
-
Óvissa um St. Jósefsspítala
- 19:22
-
Verktakar á Akureyri tókust á
- 18:55
-
Jötni skipað út frá Húsavík



Lokaumræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 stendur í Ráðhúsinu. Minnihlutinn tekur borgarstjóra ekki trúanlegan þegar hann segir grunnþjónustu ekki verða skerta með boðaðri hagræðingu. Borgarstjóri leggur til óbreytt útsvar og engar skattahækkanir.

Forsætisráðherra segir að Íslendingar hefðu ekki haft möguleika að vinna dómsmál sem höfðað hefði verið í Bretlandi vegna beitingar hryðjuverkalaganna gegn Landsbankanum. Stjórnvöld hafa ákveðið að leita til Mannréttingadómsstólsins.
Óvissa ríkir um eignarhald á stærstu tryggingarfélögum landsins. Eigendur þeirra hafa orðið fyrir gríðarlegum skakkaföllum í kjölfar bankahrunsins.
Þrjár þrettándabrennur verða í Reykjavík í kvöld, við Reynisvatn, Ægisíðu og við Gufunesbæinn í Grafarvogi. Bálið var kveikt við Ægisíðu klukkan sex og þegar ætti að vera farið að loga glatt í brennunni í Grafarvogi. Kveikt verður síðan í brennunni við Reynisvatn klukkan hálfátta. Fastlega má gera ráð fyrir að álfar og huldufólk láti sjá sig, stígi dans og taki lagið með þátttakendum.











